Sjónaukinn 2022

Sjónaukinn, árleg ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs Háskólans á Akureyri, verður haldin í háskólanum á Akureyri dagana 19.-20. maí. Þema ráðstefnunnar að þessu sinni er Áskoranir framtíðarinnar: Velferðarþjónusta í nærumhverfi. Áhersla ráðstefnunnar verður á notendur í nærumhverfi og sérstaklega á aldraða. Aðalfyrirlesararnir hafa breiða sýn á öldrun sem verður aðalumfjöllunarefni þeirra. Í ár munu fimm aðalfyrirlesarar taka þátt í Sjónaukanum og fjalla um velferðarþjónustu í nærumhverfi út frá sínum rannsóknaráherslum.

Ráðstefnan er án endurgjalds og öllum opin.

Allar frekari upplýsingar má finna á heimasíðu Sjónaukans, þar má finna bæði skráningarhnapp á ráðstefnuna og tengil á Facebook viðburðinn, en þar birtum við í gær viðtal við Dr. Kristínu Þórarinsdóttur formann Sjónaukanefndarinnar.
Athugið að neðst á síðunni má finna tengla inn á fundina fyrir þá sem taka þátt rafrænt og hafa ekki skráð sig.

Deildu þessu á:

Facebook