Málþing – Hvað er í matinn hjá ömmu og afa?

Málþing um hinn þögla vanda vannæringar eldra fólks í heimahúsi.  Málþingið er á vegum Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands og Landspítala, í samvinnu við Næringarstofu Landspítala, Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu og heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.

Dagskrá

  • 13.00    Næring – vanmetinn þáttur í öldrunarþjónustu. Pálmi V. Jónsson fv. yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands.
  • 13.15    Afleiðingar vannæringar meðal eldri einstaklinga. Ólöf Guðný Geirsdóttir prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
  • 13.30    Staða þekkingar og grunnur fyrir HOMEFOOD rannsóknina. Alfons Ramel prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
  • 13.45    Niðurstöður HOMEFOOD rannsóknarinnar. Berglind S. Blöndal doktorsnemi í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
  • 14.00    HOMEFOOD – Hvað kostar þetta? Ólöf Guðný Geirsdóttir prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
  • 14.15    Kaffihlé
  • 14.35    Styrkir til kaupa á næringarviðbót vegna vannæringar. Ingibjörg Gunnarsdóttir prófessor í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
  • 14.45    Hvað getur Landspítali gert? Áróra Rós Ingadóttir deildarstjóri á Næringarstofu Landspítala og lektor við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands.
  • 15.00    Sjónarhorn lækna. Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala.
  • 15.10    Hvert er hlutverk heilsugæslu? Óla Kallý Magnúsdóttir næringarfræðingur á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu.
  • 15.20    Hvernig er unnið með vannæringu í heimaþjónustu? Margrét Guðnadóttir sérfræðingur í heimahjúkrun og verkefnastjóri SELMU og Eva Björg Björgvinsdóttir næringarfræðingur í heimaþjónustu Reykjavíkurborgar.
  • 15.30    Pallborðsumræður (allir fyrirlesarar taka þátt)
  • 15.50    Samantekt og dagskrárlok

Fundarstjórn: Pálmi V. Jónsson

Viðburðurinn verður einnig sendur út í beinu streymi: https://eu01web.zoom.us/j/62189703154

Sjá jafnframt upplýsingar á Facebook síðu viðburðarins hér: Hvað er í matinn hjá ömmu og afa?

Deildu þessu á:

Facebook