MÁLÞING OG FYRIRLESTUR. LISTIR OG MENNING SEM MEÐFERÐ: ÍSLENSK SÖFN OG ALZHEIMER.

Listir og menning sem meðferð: Íslensk söfn og alzheimer

19. september 2017 í Salnum í Kópavogi kl. 20:00

Francesca Rosenberg, deildarstjóri fræðsludeildar Nútímalistasafnsins (MoMA) í New York, heldur fyrirlestur um dagskrána „Meet me at MoMA“.

20. september 2017 kl. 13:00–17:00

Málþing og smiðjur. Tjarnarsal Ráðhússins kl. 13:00–15:00 og

í Listasafni Íslands kl. 15:00–17:00.

Takið dagana frá. Við hlökkum til að hitta ykkur ! Á málþinginu 20. september verður kynning á bókinni Listir og menning sem meðferð: íslensk söfn og Alzheimer. Í henni eru kynntar hugmyndir um hvernig nýta megi listir til að auka lífsgæði fólks með alzheimer og bæta og treysta samband þess við ástvini sína. Alzheimer sviptir einstaklinginn smám saman sjálfsmeðvitundinni en með hjálp lista má að einhverju leyti endurheimta hana. Myndlist og íslenskur menningararfur geta þannig virkjað hugmyndaflugið, tilfinningaminnið og getuna til að eiga í félagslegum samskiptum.

Frummælendur á málþinginu verða:

•Francesca Rosenberg deildarstjóri Fræðsludeildar MoMA-listasafnsins í New York, USA

• Jón Snædal forstöðumaður Minnismóttöku Landakots, Landspítali Íslands

• Carmen Antúnez Almagro taugasérfræðingur og forstöðumaður Minnismóttöku Háskólasjúkrahússins Virgen de la Arrixaca í Murcia á Spáni

• Javier Sánchez Merina arkitekt og dósent við arkitektadeild háskólans í Alicante á Spáni

• Sigurjón Baldur Hafsteinssona prófessor safnafræða við Háskóla Íslands

• Halldóra Arnardóttir, listfræðingur, stjórnandi verkefnisins og ritstjóri bókarinnar

Erindi málþingsins verða flutt í Tjarnarsal ráðhússins en síðan flytjum við okkur yfir Fríkirkjuveginn í Listasafn Íslands. Þar geta gestir tekið þátt í smiðjum sem tengjast sýningunum Fjársjóður þjóðar og Taugafold VII / Nervescape VII og leitað svara við því hvernig við skoðum listir og hluti, hvaða tengingar myndast við þá og hvernig þær myndast, í samhengi við alzheimer-sjúkdóminn. Þátttakendum verður skipt niður í hópa þannig að allir geti tekið þátt í öllum smiðjunum. Unnið verður með myndlist, arkitektúr, bókmenntir og tónlist.

Málþingið er opið starfsmönnum safna, þeim sem vinna við dagþjálfun og á dagvistunarheimilum, kennurum og nemendum á framhalds- og háskólastigi og auðvitað listamönnum úr ólíku starfsumhverfi og öðrum úr skapandi greinum.

Bókin Listir og menning sem meðferð: íslensk söfn og Alzheimer verður til sölu á málþinginu en hana verður líka hægt að kaupa í forsölu sem kynnt verður síðar. Háskólaútgáfan gefur bókina út.

Þátttaka er endurgjaldslaus, þökk sé styrktaraðilunum FÍSOS, Landspítala Íslands, Háskóla Íslands, Alzheimersamtökunum, Listaháskóla Íslands, Reykjavíkurborg og Listasafni Íslands. Skráning þátttöku er þó nauðsynleg.

Vinsamlegast fyllið út eftirfarandi upplýsingar til að skrá ykkur á málþingið: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScR1EdJJU7CjO1cMt0I-ezYRbuRTo4H_QiMO4dEYrv3BU4gjg/viewform?c=0&w=1&usp=mail_form_link

Deildu þessu á:

Facebook