Opið fyrir umsóknir í vísindasjóð ÖLD

Vísindasjóður Öldrunarfræðafélags Íslands var stofnaður 1984 til styrktar vísinda- og rannsóknarstarfsemi í öldrunarfræðum. Stjórn Vísindasjóðs Öldrunafræðafélags Íslands auglýsir eftir umsóknum um vísindastyrki. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2024. Meðfylgjandi eru leiðbeiningar varðandi umsókn og umsóknareyðublað. Umsóknir berist rafrænt á eyðublaði Vísindasjóðs ÖLD til [email protected]. Hámarksupphæð styrks árið 2024 er 300.000,-. Nánari upplýsingar fást hjá Guðrúnu […]